Flýtilyklar
Forsíða
Fréttir
Lækkun á verðskrá.
Það er mjög ánægjulegt fyrir okkur að tilkynna það að við sjáum okkur fært að lækka verðskrá um 15.000.kr. frá eldri verðskrá frá og með 1.maí 2011. Þá er spurt afhverju ? Við sjáum það samkv. Ársskýrslu Mast fyrir árið 2010 um fjölda innfluttradýra að það þarf meiri samkeppni á þennan markað og hefur fólk einmitt kvartað yfir því ef svo mætti segja að það vildi sjá meiri verðmun. Svo er það bara ánægjulegt að geta létt undir fyrir þá sem virkilega hafa áhuga á og þurfa að flytja inn hunda og ketti í þessari dýrtíð. A.T.H. Þetta kemur ekki niður á þjónustu við dýrin. Fólk verður líka vart við það ef svo verður, dýrin geta alveg látið vita með það. Verðskrá má sjá hér sundurliðaða á tengli vinstra megin hér á síðuni. En hún er annars þannig: Kettir 100.000.kr. Hundar undir 10.kg. 135.000 kr. Hundar 10-20 kg. 160.000 kr. og hundar yfir 20 kg. 185.000. Þessi verð eru með skatti.
Kristinn
Heilbrigðisvottorð og rannsóknarniðurstöður
Að gefnu tilefni mun verða gengið harðar eftir því að frumrit þau er reglugerð 935/2004 gerir ráð fyrir að fylgi dýrum við komuna til landsins séu til staðar. Dýrin ásamt tilheyrandi frumritum eru skoðuð á Keflavíkurflugvelli áður en dýrin fara í einangrun. Geti eigandi ekki framvísað frumritum munu dýrin verða send tilbaka til upprunalands líkt og reglugerðin gerir ráðfyrir. Eigendur eruhvattir til að líma frumrit pappíra tryggilega og í vatnsheldum umbúðum á búr dýranna til að flýta fyrir afgreiðslu þeirra á Keflavíkurflugvelli FÓLK ER BEÐIÐ AÐ HAFA ÞETTA Í HUGA ÞANNIG AÐ EKKI ÞURFI AÐ KOMA TIL ÞESS AÐ DÝRUM SÉ VÍSAÐ ÚR LANDI VIÐ KOMU.
Virðingarfyllst
Héraðsdýralæknir Gullbringu- og Kjósarumdæmis





