Fyrirhuguð lækkun á verðskrá
Almennt - fimmtudagur 15.janúar 2009 - Lestrar 120
Eins og einhverjir hafa tekið eftir er mikill hjartaumræða hér fyrir norðan þ.e.a.s. allt gert með góðu hjarta. Umferðaljós á Akureyri lýsa rauðu hjarta og rauð hjörtu hanga nánast allstaðar við fyrirtæki og stofnanir. Fyrirtæki eru hvött til þess að koma á móts við fólk eins og þau treysta sér til með hjartalaginu einu saman. Við erum engin undantekning, við ætlum að lækka okkar verðskrá frá og með 1.feb.nk. um ca.10.þús. kr. Hugsanlega verður um tímabundna lækkun að ræða eða þar til við sjáum hvernig þetta kemur út, og höfum við hugsað okkur að prófa þetta til júlíloka eða í 6.mán. Verðskráin verður birt hér á síðunni okkar í næstu viku.
Kristinn




