Holl 8
Jæja þá er holl 8 komið til okkur. Tafir voru á flugi v/veðurs þ.16 en allt gekk þetta upp að lokum og eru öll dýr hress. Vel hefur gengið með öll dýr frá því að við opnuðum í jan.sl. og engin stór áföll hafa komið uppá (7913). Ég viðurkenni að maður fékk hnút í magan þegar innanlandflugi var aflýst seinnipartin þ.16. Ég rauk suður og keyrði í snarvitlausu veðri um kvöldið og strax morgunin eftir reyndi ég að koma öllum í flug sem tókst. Ekki var dýrum meint af þessari auka bið og má segja að svona tilvik eru teljandi á annari hendi í venjulegu árferði, enda voru þetta bara 3.flugferðir sem féllu niður. Aðstaða er á Keflavíkurflugvelli þegar svona tilvik koma upp, þar sem dýrum er hleypt út úr búrum sínum til að drekka og borða. Sú aðstaða er einnig notuð þegar hundar koma til landsins að kvöldi eða nóttu.
þegar upp koma vandamál er það bara verkefni sem þarf að leysa.
Kristinn.




