Hvatastaðir ehf. Einangrunarstöð gæludýra Hrísey.

Einangrunarstöð gæludýra

Reglur flutningsaðila

UMGENGNISREGLUR FYRIR FLUTNINGSAÐILA.

Flutningsaðili hefur til umráða bifreið sem er í eigu rekstraraðila og skal hann gæta þess að hún sé ávallt til taks og hrein við notkun. Umrædda bifreið má eingöngu nota til flutnings á dýrum sem tilheyra Hvatastöðum ehf.

Í bifreið skal vera eftirfarandi: Einnota galli og hanskar, Virkon S sótthreinsiefni,   garðúðari, vatn í brúsa, sjúkrakassi með lágmarksinnihaldi, ruslapokar , rafsuðuvettlingar (v/katta) og ólar til að festa flutningsbúr í bifreið. Einnig skal vera dagbók sem bílstjóri skrifar í þegar hann sækir dýr. Þar skal tilgreina akstursleið og tíma hvenær hann er mættur á Keflavík og þegar hann skilar dýrinu í flug í Reykjavík. Öll frávik s.s. seinkanir á flugi eða v/umferðar skal skráð. Þrif á bifreið bæði fyrir og eftir flutning skal einnig skráð.

Ef um sóttmengað sorp er að ræða skal það skráð og skilað á viðurkennda sorpförgunarstöð og fá kvittun fyrir því sem hefta skal við bls. umrædds dags.

Flutningsaðili sækir dýr á Keflavík og fer með það beinustu leið í flug sem fer frá Reykjavík til Akureyrar.

Nota skal einnota hanska við meðhöndlun búra. Bifreið skal vera þrifin að utan og innan fyrir og eftir flutning. Í því rými sem flutningsbúr eru, skal það úðað með Virkon S blöndu bæði fyrir og eftir flutning.  Ráðlagður styrkur: 1% (50 g Virkon S í 5 lítra af volgu vatni (ca.20°c)) eða 10 töflur ef um þær eru að ræða.)

Rekstraraðili útvegar allt það sem ofngreint er fyrir bifreið.

Ef seinkanir verða á flugi til Akureyrar eða af öðrum óviðráðanlegum orsökum skal flutningsaðili tilkynna það rekstraaðila og Héraðsdýralækni Gullbringu-og Kjósarumdæmis.

Ef um langvarandi seinkanir er að ræða skulu ákvarðanir teknar í samráði við rekstraraðila og Héraðsdýralækni um framhald aðgerða. Ef dýr fer að haga sér undarlega eða sýnir veikleikamerki skulu sömu aðilar og tilgreyndir eru hér að ofan látnir vita hið fyrsta.

Mikilvæg símanúmer:

Rekstraraðili Hrísey: Kristinn Árnason s: 466-2089 / 695-1968.

Héraðdýralæknir Gullbringu-og Kjósaumdæmis: Gunnar Örn Guðmundsson s: 530-4800 / 894-0240.

Tollafgreiðsla: Soffía Axelsdóttir s: 425-0916.

Flugfélag Íslands: Reykjavík s: 570-3030 / Akureyri s: 460-7000.

Héraðdýralæknir Skagafjarðar-og Eyjafjarðarumdæmis: Ólafur Jónsson s: 530-4800 / 858-0860.

Dýrey

Mynd augnabliksins

snaei_ll..jpg
Stefna ehf

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 16425
Við brosum með hjartanu 2009

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning