MÓTTAKA GESTA
Heimsókir dýraeigenda eru leyfðar í samráði við rekstraraðila.
Heimsóknir eru ekki leyfðar fyrr en komnar eru niðurstöður úr öllum sýnum frá þeim dýrum sem dvelja í einangrunarstöðinni hverju sinni. Er þá oftast bara ein vika eftir af einangrunartímabilinu. Einungis sá sem skráður er fyrir innflutningsleyfinu er heimilt að koma í heimsókn.
Viðkomandi skal hlíta reglum stöðvarinnar um umgengni sem eru eftirfarandi:
1. Heimsóknartími skal vera pantaður með lámarks þriggja sólahringa fyrirvara. Viðkomandi skal skrá sig með fullu nafni og síma. Einungis skráðum eigenda er heimilt að panta heimsóknartíma. Miðað er við að heimsóknir séu á tímabilinu 10:00 – 15:00 virka daga. Aðeins ein heimsókn er leyfð á dag.
2. Við komu í stöð skal viðkomandi skrá nafni sitt og símanúmer í gestabók, þannig kvittar viðkomandi fyrir komu sinni og hægt er að rekja smit ef slíkt tilfelli kæmi upp eftir viðkomandi heimsókn í stöð. Einnig er það hugsað ef smit kemur upp eftir heimsókn að hægt sé að láta viðkomandi vita ef hann umgengst önnur dýr eftir á. Þannig eru hagsmunir bæði rekstraraðila og dýraeigandans best varið með ofangreindu verklagi
3. Viðkomandi skal fara í sturtu og klæðast tilheyrandi fatnaði sem er til staðar í stöð áður en hann fer inn í einangrunarrými, einnig skal viðkomandi klæðast einnota hönskum. Gestum er aðeins leyft að koma inn í dýralæknaherbergi en þar mun starfsmaður stöðvarinar koma með dýr viðkomandi inn, og þar geta eigandi og dýr haft samverustund í um 40.mín.
4. Eftir að heimsóknartíma lýkur skal viðkomandi fara í sturtu og eftir sturtu að setja sótthreinsigel á hendur sínar.
5. Fyllsta trúnaðar skal gætt við rekstraraðila ef viðkomandi sér eða verður vitni að einhverju sem viðkemur starfsemi stöðvarinnar eða öðrum dýrum sem í henni dveljast. Og eins ef viðkomandi sér eitthvað athugavert eða gagnrýnivert skal hann hiklaust ræða það við rekstraraðila því aðeins þannig er hægt að gera dvöl dýranna ykkar sem allra besta og með fullum trúnaði verða samskipti rekstraraðila og eigenda ánægjulegri.
6. Rekstraraðili eða starfsmaður stöðvarinar hefur fulla heimild til þess að vísa viðkomandi gesti út úr stöðinni ef hann hlítir ekki ofangreindum reglum.
Upplýsingar um ferjuferðir er hægt að nálgast á linknum http://www.hrisey.is/.
Hvatastaðir ehf.
Kristinn Árnason rekstraraðili og bústjóri einangrunarstöðvanna




