Hvatastaðir ehf. Einangrunarstöð gæludýra Hrísey.

Einangrunarstöð gæludýra

Þrifa og sótthreinsiáætlun

ÞRIFA- OG SÓTTHREINSIÁÆTLUN

 FYRIR EINANGRUNARSTÖÐ GÆLUDÝRA HRÍSEY.

GRÓFHREINSUN

Grófhreinsun felst í því að fjarlægja öll sjáanleg óhreinindi (t.d. saur, hland, dýrahár og utanaðkomandi óhreinindi í útibúrum ) Kattaklefana er oftast nóg að sópa gólf og fjarlægja kattahár.

Skálar og vatnsílát skulu sápuþvegin einu sinni á dag frá öllum dýrum. Gangar skulu ávallt skolaðir eftir umgang starfsmanna um dýraklefanna og úðaðir með Virkon S í lok hvers vinnudags.(sjá sótthreinsun neðar)

Vel útfærð grófhreinsun er forsenda árangurs við þrif og sótthreinsun !

ÞVOTTUR

Ráðlagt efni:                 ANTEC HD3

 Ráðlagður styrkur:      1 : 160 ( 30 ml í hverja 5 lítra af vatni)

 Áætluð efnisnotkun :  1 líter af sápulausn á hvern fermetra

 Úðið sápulausninni með garðúðara eða háþrýstitæki (stillið á lágþrýsting,500 psi(3bör)).Látið sápulausnina liggja á vinnusvæði í 20-30 mín. síðan er skolað með háþrýstitæki (með hreinu vatni) þar sem byrjað er efst (loft/veggir) og unnið sig niður á gólf. Veitið sérstaka athygli samskeytum,sprungum í yfirborði o.þ.h. stöðum þar sem meiri líkur eru á því að óhreinindi safnist fyrir.

Ef möguleiki býðst þá er réttast að leyfa vinnusvæðinu að þorna áður en sjálf sótthreinsunin fer fram. Gætið þess að allir lausamunir sem fjarlægðir voru af vinnusvæðinu við grófhreinsunina fái sömu þvottameðferð, þau úðuð eða lögð í bleyti og síðar skoluð.

SÓTTHREINSUN

Ráðlagt efni:                       VIRKON S

Ráðlagður styrkur:            1% (50 g Virkon S í 5 lítra af volgu vatni (ca.20°c))

Áætluð efnisnotkun:          0,3 lítrar af sótthreinsilausninni á hvern fermetra.

Sótthreinsilausninni er úðað yfir alla fleti dýraklefans með garðúðara og gengið úr skugga um að allir hlutar þess séu bleyttir þar sem líta má á áætlaða notkun hér að ofan sem lámarksviðmiðun. Virkon S sótthreinsiefnið er af flokki oxandi efna og því ástæða að skola með hreinu vatni eftir 30 mínútna virknitíma sótthreinsilausnarinnar, af öllum hlutum/svæðum úr óvörðum málmtegundum, til að forðast tæringu.

Einnig eru lausamunir úr dýraklefum sótthreinsaðir með sömu aðferð.

VERKLAGSREGLUR UM ÞRIF OG SÓTTHREINSIÁÆTLUN

MÓTTAKA DÝRA Í STÖÐ

Öll dýr eru tekin inn um suðurenda stöðvarinnar í sínu flutningsbúri og það ekki tekið út fyrr en búið er að loka öllum dyrum í móttökurými.

Eftir að dýrið hefur verið flutt inn í sinn dýraklefa skal flutningsbúrið þvegið og sótthreinsað eins og þrifa- og sótthreinsiáætlun segir til um.

Ef um trébúr er að ræða skal því fargað með brennslu. Móttökurými er svo þrifið og sótthreinsað eftir móttöku hvers dýrs.

Ef um fleiri dýr er að ræða skal þess gætt að þau komist ekki í snertingu við hvort annað og hægt er að taka öll flutningsbúr inn en taka út eitt og eitt dýr út í einu. Flutningsbúrin eru svo geymd uppi á lofti í austurhluta móttökurýmis.

Við brottför dýra skal flutningsbúr viðkomandi dýrs úðað með Virkon S

DAGLEG ÞRIF

Dagleg þrif skulu fara fram eins og Þrifa og sótthreinsiáætlun segir til um.

EFTIR NIÐURSTÖÐUR ÚR SÝNUM

Ef allt er eðlilegt eftir að niðurstöður úr sýnum eru kunn skulu allir dýraklefar sótthreinsaðir eins og sótthreinsiáætlunin segir til um.

VIÐ LOK EINANGRUNARTÍMANS ,,STÖÐIN TÆMD”

Grófhreinsun, þvottur og sótthreinsun eins og Þrifa- og sótthreinsiáætlun segir til um.

Eftirtaldir staðir sem heyra undir þessa áætlun eru:

Allir dýraklefar, gangar í einangrunarrými, þvottaherbergi og móttökurými/fóðurgeymsla. Gólf í dýralæknaherbergi og fataskiptarými skal vera skúrað uppúr sápuvatni og lausamunir sem þola þvott þvegnir uppúr sápuvatnslausninni.

Eftir að allt er orðið þurrt skal allt úðað með Virkon S.

ATHUGIÐ.

Ofangreint þrifa plan er ekki tæmandi. Strangari smitvarnarreglur eru settar á ef um einhverjar sýkingar eða sjúkdóma er að ræða.

Sjá viðbragðsáætlun ef sýkingar eða sjúkdómar koma upp.

Dýrey

Mynd augnabliksins

inferno_l.jpg
Stefna ehf

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 16425
Við brosum með hjartanu 2009

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning