Hvatastaðir ehf. Einangrunarstöð gæludýra Hrísey.

Einangrunarstöð gæludýra

Húsnæði og starfsfólk

Starfsfólk og menntun.

Starfsmenn stöðvarinar eru tveir, það er bústjóri einangrunarstöðvanna í Hrísey, Kristinn Frímann Árnason ásamt eiginkonu sinni, Báru J. Steinsdóttur, sem hefur tekið þátt í starfsemi einangrunarstöðvanna ásamt honum.

Kristinn hefur starfað við einangrunarstöðvarnar í Hrísey allt frá árinu 1987, fyrst sem sumarafleysingamaður en síðan frá árinu 1993 sem fastráðinn bústjóri einangrunarstöðvar fyrir svín og er það starf hans í dag. Gagnkvæmur samningur um afleysingar var á milli einangrunarstöðva svína og gæludýra frá árinu 1994 allt fram í apríl 2006, þannig að mikil reynsla er af umgengnisreglum á einangrunarstöðvum. Þess má geta að Kristinn fór til Noregs árið 2000 og lærði þar svínasæðingar og sæðistöku úr svínum ásamt því að kynna sér sérstaklega umgengnisreglur í einangrunarstöðvum fyrir dýr.

Öllu starfsfólki sem kemur að starfsemi stöðvarinnar verða  kynntar umgengnisreglur einangrunarstöðva samkvæmt reglugerð 423/2003.

Dýralæknaþjónusta Eyjafjarðar þjónustar stöðina samkvæmt samningi.  Rekstraraðili stöðvarinnar er fyrirtækið Hvatastaðir ehf. kt. 590907-1110 en eigandi þess er Kristinn Frímann Árnason.

Húsnæðið og staðsetning.

Húsnæðið er inn á einangrunarsvæði sem er ca. 800 m. norðan við þorpið í Hrísey, stendur nánar tiltekið við Lambhagaveg að Kríunesi 1. Á svæðinu er rekin einangrunarstöð fyrir svín og einnig er þar fjós sem áður hýsti einangrunarstöð fyrir nautgripi en þar eru enn ræktaðir nautgripir af Galloway og Limosin kyni.

Einangrunarstöð fyrir gæludýr var starfrækt í umræddu húsnæði frá árinu 1991-2006.    Í apríl árið 2006 hætti þáverandi rekstraraðili rekstri í húsnæðinu og hefur það staðið autt síðan. Umtalsverðar breytingar voru gerðar á húsnæði og umhverfi þess til að standast reglugerð nr.423/2003 um einangrunarstöðvar fyrir innflutt gæludýr.

Í húsnæðinu eru 12 klefar fyrir hunda og 4 klefar fyrir ketti. Hiti er í öllum gólfum og klefum sem auðvelt er að þrífa. Hægt er að hýsa 12-15 hunda og 4-6 ketti, alls 16-21 dýr í einangrunarstöðinni.

Dýrey

Mynd augnabliksins

sunna.jpg
Stefna ehf

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 16425
Við brosum með hjartanu 2009

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning