Verðskráin gildir frá og með 1.maí 2011.
Sundurliðun Kettir Hundar 1. Hundar
2. Hundar 3.
Dvalargjald: 51.450. 67.410.
83.314. 99.219.
Dýralæknaþj.: 20.200. 32.128.
32.128. 32.128.
Flutningur: 8.032.
8.032. 12.048. 16.064.
Alls án
vsk.: 79.682 107.570 127.490 147.411
25.5 %
vsk.: 20.318 27.430 32.510 37.589.
Samtals: 100.000.
135.000. 160.000. 185.000.
Hægt er að skipta greiðslum með Visa eða Masterc./Euro. kortalánum til allt að 36.mán. Hægt er að smella á visa logoið
hér á síðuni og sjá greiðslubyrði kortaláns.
Staðfestingargjald og heildargreiðsla.
Staðfestingargjaldið er 35.000 kr. og greiðist tveim vikum fyrir áætlaðan komutíma dýrsins. Innflutningsaðila er hinsvegar ekki skylt að
greiða þetta gjald því hægt er að skipta heildargreiðslu á kreditkort. En sumum finnst gott að líta á þessa
upphæð sem innborgun. Heildargreiðsla fyrir dvöl dýrsins skal vera lokið hálfum mánuði eftir komu dýrs í
stöð. Staðfestingargjaldið er ekki endurkræft en þó samkomulagsatriði eftir atvikum.
Verðskrárflokkar
Verðskrá stöðvarinnar er þrískipt, stöðvargjald, dýralæknaþjónusta og flutningur.Í stöðvargjaldi er falin öll
almenn umönnun, umhirða og fóðrun á dvalartíma. Einn gjaldflokkur er fyrir ketti, en gjaldi fyrir hunda er skipt í 3 flokka, flokk 1 sem eru hundar
undir 10 kílóum, flokk 2 sem eru hundar á bilinu 10 til 20 kíló og svo flokk 3 sem eru hundar þyngri en 20 kíló.
Í flokki
hunda undir 10 kílóum er um að ræða allar smáhundategundir allt upp í Cavalier King Charles Spaniel, einnig Ítalskur mjóhundur, langhundur,
Miniature Schnauzer, Miniature Pincher og fleiri. Í flokki hunda 10 til 20 kíló eru hundar eins og íslenskur fjárhundur, Whippet, Beagle og
Amerískur Cocker Spaniel. Í þyngsta flokkinn, hundar þyngri en 20 kíló falla flestir fuglahundar og sækjar, auk vinnuhunda og annarra stórra
tegunda. Þóknun fyrir dýralæknaþjónustu er hin sama fyrir allahunda óháð stærð.Í flutningsgjaldi er
falinn flutningur frá Keflavíkurflugvelli til Hríseyjar. Gjald fyrir flutning er þrískipt eins og stöðvargjaldið, og lýtur sömu
þyngdarflokkun.
Aukagjöld.
Ef dýrið er send heim með flugi að lokini einangrunravist greiðir viðtakandi sjálfur fyrir það. (Flutningsgjald fyrir smá og
meðalhunda með flugi er í flestum tilfellum ekki yfir 5000.þús.kr. ) Starfsmenn stöðvarinar sjá um að panta flugið fyrir viðkomandi dýr
og koma því á flugvöllin,það er innifalið í gjaldskrá.Heimsóknir eru heimilar eftir að komið er úr öllum sýnum,
en það er yfirleit ekki fyrr en vika er eftir af einangrunartímanum. Semja skal um tímasetningi við starfsmenn stöðvarinar, það er svo alfarið
á ábyrgð eiganda að tímasetning haldist, ekki er hægt að treysta því að annar heimsóknartími fáist sé tíminn
ekki nýttur. Lengd heimsóknar ræðst af ferjuáætlun en hægt er að reikna með að eigandi nái a.m.k. 40 mínútum
með dýri sýnu. Verði starfsfólk stöðvar þess áskynja að eigandi fer ekki að einu og öllu eftir settum reglum,
þá er þeim heimilt að vísa viðkomandi úr stöðinni.Sjá linkinn Móttaka gesta.