|
Um starfsemi og verklagsreglur á Hvatastöðum ehf. kt. 590907-1110 Einangrunarstöð gæludýra Hrísey.
Flutningsferlið. KEF. –REK. -AEY.
Innflutningsstaður er Keflavíkurflugvöllur. Við komu dýrs sinnir héraðsdýralæknir í því umdæmi móttökuskoðun. Að því loknu er dýrið flutt beint út á Reykjavíkurflugvöll í flutningsbifreið í eigu Hvatastaða ehf. Sigurður Karlsson leigubílstjóri sér um flutninginn og sér til þess að bifreiðin verði þrifin og sótthreinsuð fyrir og eftir hvern flutning. Við komu dýra til Akureyrar tekur starfsmaður stöðvarinnar á móti dýrinu þar sem það er sett í sérstaka flutningskerru sem einnig er í eigu Hvatastaða ehf. Flutningskerran er yfirbyggð með stillanlegum loftristum og yfirbyggingin er úr plasti þannig að þrif eru auðveld utan sem innan.
Starfsmaður stöðvarinnar fer að því loknu rakleiðis út á Árskógssand í Hríseyjarferjuna,þar sem kerran er hífð um borð. Við komu til Hríseyjar er farið beint út í einangrunastöðina, inn á afgirt svæði þar sem dýrið er tekið úr kerru og beint inn í stöð. Innkoma dýra er í suðurenda hússins. Ferðalagið tekur ef allt er samkvæmt áætlum u.þ.b. 4 klst. frá Kef-Hríseyjar og inn í stöð. Þ.e.a.s. 60 mín. Kef.-Rek. Rek-Aey. (flug) 45.mín. Aey.- Árskógss. 35 mín. Ferja til Hríseyjar 15.mín. Bryggja Hrísey- einangrunarstöð 5.mín.
Allir starfsmenn sem koma að flutningi eru meðvitaðir um reglug nr.432-2003 við innflutning dýra.
Dýr koma í stöð.
Strax við komu í einangrunarstöðina er ástand dýrsins skoðað sérstaklega og sé um sár eða áverka að ræða þá er slíkt skráð og myndað sérstaklega. Dýrinu er svo komið fyrir í dvalar klefa þar sem er ferskt vatn og fóður. Fylgst er með dýrinu eftir komu og starfsmaður yfirgefur ekki stöðina fyrr en hann er viss um að dýrið hafi drukkið og/eða étið og að það sé hressilegt að sjá. Dýrinu skal sýna blíðu og vináttu og sýna því þannig að það sé velkomið til dvalar í einangrunarstöðina.
Strax við komu í stöð er dvalarskýrsla viðkomandi dýrs fyllt út og hún hengd upp við þann dvalar klefa sem við á. Flutningsbúr eru sápuþvegin og sótthreinsuð strax á komudegi og sett í geymslu. Ef um trébúr er að ræða þá er þeim eytt. Leikföngum og/eða undirlagi sem ekki þola suðuþvott eða sótthreinsun er einnig eytt. Þá er flutningskerran einnig sápuþvegin og sótthreinsuð að innan sem utan.
Dýrið dvelur í 28 daga samkvæmt reglug.nr.432-2003 í einangrunarstöðini.
Fóðrun.
Fóðrun dýra í stöð fer að lágmarki fram tvisvar á dag og oftar ef þörf krefur. Fyrsta gjöf kl. 8:00 -9:00 að morgni og síðari gjöf kl.17:00.
Dýrið hefur ávallt aðgang að fersku vatni og skipt er um það við hverja fóðurgjöf. Eftirlit með dýrum í stöðinni utan venjulegs fóðurtíma fer fram kl. 13:00 og þá er einnig bætt við vatni ef þörf krefur. Seinna eftirlit fer fram kl. 20:00. En þetta er samt sem áður metið hverju sinni eftir þörfum og ástandi dýra.
Umhirða.
Sólarhring eftir komu dýrs er það baðað og er þá aðallega átt við hunda. Eyða skal að lámarki 4 klst.á dag með dýrunum og oftar ef þörf krefur. Feldhirða og snyrting dýra fer fram eftir þörfum.
Öll dýr eru vigtuð tvisvar sinnum í viku á einangrunartímanum.
Þrif.
Allir hundaklefar eru skolaðir að morgni og oftar ef þörf krefur.Oft er nóg að sópa kattaklefa en skola jafnframt eftir þörfum. Sjá annars verklagsreglur um þrif og sótthreinsiáætlun einangrunarstöðvarinnar og viðbragðsáætlun um sjúkdóma.
Heimkoma dýra.
Á síðasta sólarhring fyrir brottfaratíma dýrs úr stöð er það baðað og snyrt eftir þörfum hvers og eins dýrs. Þess er gætt að dýrið hafi drukkið vel fyrir flutning í land.Flutningsbúr er sápuþvegið og sótthreinsað.Ef kerran er notuð þá er hún einnig sápuþvegin og sótthreinsuð.
Annað.
Ofangreindar verklagsreglur eru ekki tæmandi heldur einungis stiklað á því helsta. Eftirlit dýralæknis og héraðsdýralæknis eru samkv. reglugerð nr.432/2003og svo eftir þörfum.
Hrísey 17 desember 2007 Kristinn Frímann Árnason bústjóri einangrunarstöðvanna í Hrísey |




