VIÐBRAGÐSÁÆTLUN EF SJÚKDÓMAR EÐA SÝKINGAR KOMA UPP
Ef grunur er um sjúkdóm eða dýr sýnir veikleikamerki eða hagar sér undarlega skal strax hafa samband við dýralækni og láta héraðsdýralækni vita. Ef um smitsjúkdóm er að ræða skal reynt eftir bestu geta að áhöld og annað lauslegt berist ekki yfir í aðra klefa, og er þá líka átt við þvottaslöngur.
Fyrir framan klefann sem um ræðir skal vera bakki með Virkon S upplausn þar sem stígið er ofaní og þvottaslangan einnig lögð í bleyti. Í slíkum tilfellum skal ætíð enda alla vinnu og umgengni á þessum klefa og klæðast einnota galla yfir vinnugalla og notast við einnota hanska við umgengni og þvott á lausamunum sem tilheyra viðkomandi klefa.
Lausamunir skulu vera þvegnir inn í viðkomandi klefa. Klefinn skal þvegin tvisvar á dag og úða skal klefann með Virkon S upplausn í lok hvers vinnudags.
Gæta skal þess að líðan dýrsins verði sem allra best á meðan meðhöndlun stendur.
ATHUGIÐ!
Ofangreint áætlun er ekki tæmandi. Hlíta skal fyrirmælum dýralæknis og héraðsdýralæknis í hvívetna og haga umgengnisreglum í samræmi við sjúkdóms- greininguna og í samræmi við hvert tilfelli fyrir sig.
Mikilvæg símanúmer:
Dýralæknaþjónusta Eyjafjarðar: 461-4950.
Aðalbjörg Jónsdóttir dýralæknir: 861-8950 / heimas: 461-4409.
Ólafur Jónsson Héraðsdýralæknir: 530-4860 / 858-0860




